rossviður

Krossviður er unninn viður sem búinn er til með því að líma saman lög af viðarspæni. Krossviður er plötuefni og er mikið notaður í byggingariðnaði og við hvers kyns smíðar. Stundum er hann framleiddur þannig að lög úr harðari og mýkri viði skiptast á og krossviður er yfirleitt framleiddur úr mýkri viðartegundum en ekki úr harðviði. Viðarspænirnir eru lagðir í kross þannig að æðarnar snúa alltaf hornrétt (90°) á næsta lag á undan og eftir. Lögin eru síðan pressuð saman við hita og límd saman með sterku lími. Krossviður er mjög stöðugur viður sem hvorki verpist né rýrnar vegna þess að æðarnar liggja í kross og toga þannig í allar áttir.

Krossviður er mikið notaður þar sem þörf er á léttu og sveigjanlegu byggingarefni sem auðvelt er að vinna hratt og auðvelt er að endurnýta. Hann er þannig notaður t.d. við bátasmíðar (þá með vatnsheldu lími) og leikmyndagerð, svo eitthvað sé nefnt.

-Wikipedia

Grenikrossviður

Birkikrossviður

Mótakrossviður

A

Spónaplata (einnig þekkt sem húsgagnaplata) er úr trjátrefjum sem eru límdar og pressaðar saman. 

Spónaplötur eru oftast um 90% tréspænir og 10% bindiefni. Spónninn er flokkaður, þurrkaður og síðan blandaður lími. Eftir pressun við mikinn hita eru plöturnar pússaðar.

Eldþolnar spónaplötur eru venjulega rauðar en rakaþolnar grænar.

Einn kostur spónaplatna er mikill stöðugleiki efnisins. Platan hreyfist ekki vegna hitasveiflna og annarra umhverfisbreytinga. 

Helsti gallinn við spónaplötur er lítið rakaþol. Ef raki kemst í efnið, þá bólgnar spónaplatan út, til dæmis ef vatn á gólfinu kemst í snertingu við óunna botnbrún á skáp.  Þar sem hætta er á raka, til dæmis á baðherbergjum, má nota grænar spónaplötur.

Plasthúðaðar spónaplötur eru algengar í húsgagnasmíði, til dæmis skápa, hillur og borðpötur. 

Við þekkjum flest IKEA húsgögn sem mörg hver eru smíðuð eru úr spónaplötum.

Hvað er OSB?

OSB (Oriented Strand Bo­ard) er bygg­ing­ar­efni sem minn­ir á eitt­hvað á milli spóna­plötu og krossviðar. Það er búið til úr gróf­um tré­spæni sem pressaður er sam­an í plöt­ur. Oft­ast eru mis­mun­andi gerðir af spæni notaðar í plöt­urn­ar sem gef­ur skemmti­legt út­lit því spón­ræm­ur í mis­mun­andi litatón­um liggja þvers og kruss í efn­inu. Plöt­urn­ar eru til í mis­mun­andi þykkt­um en 9 og 12 milli­metra plöt­ur eru al­geng­ast­ar og al­geng­asta plötu­stærðin er 120×250 eða þar um kring. Efnið er til að mynda notað í klæðning­ar, sem innra lag í tvö­faldri klæðningu á milli­vegg eða í burðar­virki gólfs og þaks. 

-mbl.is

Scroll to Top