Hönnun og smíði – 5. bekkur

Velkomin á vefsíðu 5. bekkjar í hönnun og smíði. Hér finnur þú hæfniviðmið, lista yfir verkfæri, smíðaverkefni og leiðbeiningar fyrir kennara.


Hæfniviðmið 5. bekkjar

Byggt á Aðalnámskrá grunnskóla (2011, 2013):

  • Nemandi vinnur verkefni frá hugmynd til afurðar með hönnunarferli sem felur í sér skissu, vinnuteikningu og efnisval.
  • Nemandi teiknar skissu og vinnuteikningu með einföldum málsetningum og hlutföllum.
  • Nemandi notar grunnverkfæri og kynnist einföldum rafmagnsverkfærum undir eftirliti.
  • Nemandi vinnur með ný efni (t.d. plast) og skilur grunnatriði um endurvinnslu og mótun.
  • Nemandi fylgir öryggisreglum og sýnir góða umgengni við efni og verkfæri.

Áhersla er á ferlið: hugmynd → skissa → smíði → ígrundun.


Verkfæri í 5. bekk

Verkfæri kynnt með sýnikennslu og æfingum:

  • Merking og mæling: blýantur, strokleður, reglustika, tommustokkur.
  • Efnismótun: barnaskæri, sandpappír, tré-rösp, handsög (undir eftirliti), hitunarverkfæri fyrir plast (kennari).
  • Samsetning: trélím, klemmur, prjónapinnar, smá naglar og hamar.
  • Öryggi: öryggisgleraugu, borðmottur, hanskar við plastvinnu, handþvottur eftir vinnu.

Rafmagnsverkfæri og hitunarverkfæri kynnt í kennarasýningu, notkun takmörkuð við stýrð verkefni.


Smíðaverkefni

Verkefni sem efla sköpun, verkfærakunnáttu og ígrundun:

1) Plastverkefni – endurvinnsla og mótun

  • Hæfni: skilningur á plastmótun, öryggi við hitun.
  • Skref: skissa → velja plast → móta með hitun (kennari) → samsetning → skreyting.

2) Einfaldur Kappakstursbíll með teygju

  • Hæfni: samsetning, styrking, skreyting.
  • Skref: skissa → saga spýtur → líma → setja hjól og teygju → skreyta → Keppa.

3) Myndarammi með skreytingu

  • Hæfni: horn, samsetning, skreyting.
  • Skref: skissa → klippa karton → líma → pússa → skreyta.4) Lítill kassi með loki og festingu
  • Hæfni: samsetning, lokalausn, styrking.
  • Skref: skissa → líma spýtur → setja lok með festingu → skreyta.

Hvert verkefni fylgir verkefnablað með markmiðum, efni, skrefum og öryggisreglum.


Leiðbeiningar fyrir kennara

Skipulag og tímasetning

  • Byrjið með kveikju og öryggisyfirferð.
  • Skiptið kennslustund í 4 fasa: skissa – smíði – tiltekt – ígrundun.

Leiðsagnarmat

  • Notið matsblað með atriðum: „Skissa“, „Öryggi“, „Samsetning“, „Ígrundun“.
  • Gefið munnlega endurgjöf á verkstæði.

Aðlögun

  • Forskorin efni fyrir byrjendur, frjáls form fyrir lengra komna.
  • Vinnustöðvar til að minnka biðtíma.

Öryggi og umhverfi

  • Skýr borðmerking, verkfæri á stöðvum, tiltekt síðustu 5 mín.
  • Afgangsefni í endurnýtingarkassa.

Samþætting

  • Læsi: heiti verkfæra, skissumerkingar.
  • Stærðfræði: mælingar, hlutföll, talning.
  • Sjálfbærni: endurnýting plasts, nýting efna.

Sniðmát – einfalt matsblað

  • Ég teiknaði skissu af hugmyndinni minni. ☐
  • Ég fylgdi öryggisreglum og sýndi góða umgengni. ☐
  • Ég kláraði samsetningu og tók þátt í tiltekt. ☐
  • Notið myndbönd og efni á stapahonnun/honnun sem kveikjur og til að styrkja orðaforða og öryggi nemenda.
Scroll to Top